Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

4. september 2014

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Vatnsendavegi í Kópavogi

Brot 31 ökumanns var myndað á Vatnsendavegi í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vatnsendaveg í suðurátt, að Akurhvarfi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fór 161 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega fimmtungur ökumanna, eða 19%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 82.

Vöktun lögreglunnar á Vatnsendavegi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.