Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

16. september 2009

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Vatnsendavegi í Kópavogi

Brot 27 ökumanna voru mynduð á Vatnsendavegi í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vatnsendaveg í suðurátt, fyrir sunnan Breiðahvarf. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 193 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 14%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var tæplega 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 68.

Vöktun lögreglunnar á Vatnsendavegi, en í nágrenni hans er Vatnsendaskóli, er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.