Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

14. maí 2024

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Þingvallavegi

Brot 3 ökumanna voru mynduð á Þingvallavegi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Þingvallaveg í austurátt, við Helgadal. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 135 ökutæki þessa akstursleið og því óku sárafáir ökumenn, eða 2%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 85 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 95.

Vöktun lögreglunnar á Þingvallavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.