Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

6. ágúst 2013

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Þingvallavegi

Brot 27 ökumanna voru mynduð á Þingvallavegi á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Þingvallaveg í Mosfellsdal í austurátt. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 318 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 8%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 83 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 102.

Vöktun lögreglunnar á Þingvallavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.