Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

15. maí 2018

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Þingvallavegi

Brot 8 ökumanna voru mynduð á Þingvallavegi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Þingvallaveg í vesturátt, á móts við Reykjahlíð í Mosfellsdal. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 82 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 10%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 84 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 101.

Vöktun lögreglunnar á Þingvallavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigning var á meðan hraðamælingunni stóð.