Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

30. október 2014

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Suðurströnd á Seltjarnarnesi

Brot 4 ökumanna voru mynduð á Suðurströnd á Seltjarnarnesi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurströnd, á móts við íþróttamiðstöðina. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 101 ökutæki þessa akstursleið og því óku fáir ökumenn, eða 4%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 71.

Vöktun lögreglunnar á Suðurströnd er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.