Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

7. október 2010

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Suðurströnd á Seltjarnarnesi

Brot 7 ökumanna voru mynduð á Suðurströnd á Seltjarnarnesi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurströnd í austurátt, á móts við Íþróttamiðstöðina. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 127 ökutæki þessa akstursleið og því óku fáir ökumenn, eða 6%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 60 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Suðurströnd, en í nágrenninu er Mýrarhúsaskóli, er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.