Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

11. febrúar 2010

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Suðurströnd á Seltjarnarnesi

Brot 4 ökumanna voru mynduð á Suðurströnd á Seltjarnarnesi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurströnd í vesturátt, gegnt Íþróttamiðstöð Seltjarnarness. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 121 ökutæki þessa akstursleið og því ók lítill hluti ökumanna, eða 3%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 67.

Við hraðamælingu á þessum sama stað í síðustu viku, en þá var fylgst með ökutækjum sem var ekið Suðurströnd í austurátt, var útkoman svipuð. Þá ók sömuleiðis lítill hluti ökumanna, eða 4%, of hratt eða yfir afskiptahraða.