Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

23. febrúar 2023

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Suðurströnd á Seltjarnarnesi

Brot 51 ökumanns var myndað á Suðurströnd á Seltjarnarnesi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurströnd í austurátt, á móts við Íþróttamiðstöðina. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 123 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 41%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 54.

Vöktun lögreglunnar á Suðurströnd er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað, blautt og snjór var á meðan hraðamælingunni stóð.