Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

19. maí 2017

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Suðurnesjum

Allmargir ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í vikunni. Sá sem hraðast ók mældist á 147 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund. Brotið er honum dýrkeypt því hans bíður 130.000 króna sekt, svipting ökuleyfis í einn mánuð og þrír refsipunktar í ökuferilsskrá. Þá voru nokkrir ökumenn staðnir að því að virða ekki gangbrautarrétt, tala í síma án handfrjáls búnaðar eða aka án þess að spenna öryggisbelti. Einn ók sviptur ökuréttindum.