Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

6. mars 2018

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Suðurlandsvegi

Brot 14 ökumanna voru mynduð á Suðurlandsvegi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurlandsveg í austurátt, á Sandskeiði. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 270 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 5%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 106 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 123.

Vöktun lögreglunnar á Suðurlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól, þurrt og mikill hliðarvindur var á meðan hraðamælingunni stóð.