Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

20. október 2010

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Suðurlandsvegi

Brot 9 ökumanna voru mynduð á Suðurlandsvegi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurlandsveg í vesturátt, á Sandskeiði. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 174 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 5%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 101 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði.