Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

30. júlí 2010

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Suðurlandsvegi

Brot 4 ökumanna voru mynduð á Suðurlandsvegi á mánudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurlandsveg í suðurátt, við Gunnarshólma. Á einni klukkustund, síðdegis, fóru 469 ökutæki þessa akstursleið og því óku sárafáir ökumenn, eða tæplega 1%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 100 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 104.