Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

22. febrúar 2024

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Suðurlandsvegi

Brot 87 ökumanna voru mynduð á Suðurlandsvegi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurlandsveg í austurátt, á móts við Geirland skammt vestan Lögbergsbrekku. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 325 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 27%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 84 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði (lækkaður hámarkshraði v/framkvæmda). Sá sem hraðast ók mældist á 95.

Vöktun lögreglunnar á Suðurlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.