Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

10. janúar 2024

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Suðurlandsvegi

Brot 57 ökumanna voru mynduð á Suðurlandsvegi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurlandsveg í austurátt, vestan Lögbergsbrekku. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 272 ökutæki þessa akstursleið og því ók um fimmtungur ökumanna, eða 21%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 85 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði (lækkaður hámarkshraði v/framkvæmda). Sá sem hraðast ók mældist á 102.

Vöktun lögreglunnar á Suðurlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigning og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.