25. júní 2014
25. júní 2014
Þessi frétt er meira en árs gömul
Hraðakstur á Suðurgötu í Reykjavík
Brot 16 ökumanna voru mynduð á Suðurgötu í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurgötu í suðurátt, við Sturlugötu. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 141 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 11%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 70.
Vöktun lögreglunnar á Suðurgötu er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.