Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

2. maí 2008

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Strandvegi

Brot 176 ökumanna voru mynduð á Strandvegi í Grafarvogi á miðvikudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Strandveg í suðurátt, gegnt Gufunesi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 337 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 52%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var rúmlega 66 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Fjörutíu og fimm óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 89.

Eftirlit lögreglunnar á Strandvegi er hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu en unnið er eftir ábendingum frá starfsmönnum svæðisstöðva lögreglunnar. Á Strandvegi var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.