Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

1. mars 2016

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Stórhöfða í Reykjavík

Brot 43 ökumanna voru mynduð á Stórhöfða í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Stórhöfða í vesturátt, á móts við Vog. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 126 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 34%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sjö óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 77.

Vöktun lögreglunnar á Stórhöfða er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.