Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

19. nóvember 2013

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Sogavegi í Reykjavík

Brot 9 ökumanna voru mynduð á Sogavegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sogaveg í austurátt, á milli Réttarholtsvegar og Tunguvegar. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 120 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 8%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 41 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Sogavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.