Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

5. apríl 2017

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Sogavegi í Reykjavík

Brot 43 ökumanna voru mynduð á Sogavegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sogaveg í austurátt, á móts við Sogaveg 220. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 60 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 72%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sjö óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 58.

Vöktun lögreglunnar á Sogavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.