Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

17. apríl 2012

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Salavegi í Kópavogi

Brot 11 ökumanna voru mynduð á Salavegi í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Salaveg í vesturátt, við Dynsali. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 74 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 15%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 70.

Vöktun lögreglunnar á Salavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.