Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

7. mars 2019

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Sæbraut í Reykjavík

Brot 98 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík frá miðvikudeginum 6. mars til fimmtudagsins 7. mars. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í vesturátt, á gatnamótum við Langholtsveg. Á einum sólarhring fóru 7.729 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 78 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 91. Tveimur ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.