Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

18. febrúar 2019

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Sæbraut í Reykjavík

Brot 520 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík frá fimmtudeginum 14. febrúar til mánudagsins 18. febrúar. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í austurátt, á gatnamótum við Langholtsveg. Á fjórum sólarhringum fóru 26.570 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 113. Átta ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.