Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

8. júlí 2024

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Sæbraut í Reykjavík

Brot 321 ökumanns var myndað á Sæbraut í Reykjavík frá mánudeginum 1. júlí til mánudagsins 8. júlí. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í vesturátt, á gatnamótum við Langholtsveg. Á einni viku fóru 51.425 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 104. Tveimur ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.