Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

22. ágúst 2023

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Sæbraut í Reykjavík

Brot 10 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík mánudaginn 21. ágúst. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í vesturátt, á gatnamótum við Langholtsveg. Á tæplega fimm klukkustundum fóru 1.474 ökutæki þessa akstursleið og því óku mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 77 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 82. Engu ökutæki var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.