Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

20. febrúar 2023

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Sæbraut í Reykjavík

Brot 87 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík frá mánudeginum 13. febrúar til fimmtudagsins 16. febrúar. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í vesturátt, á gatnamótum við Langholtsveg. Á þremur sólarhringum fóru 18.761 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 102. Níu ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.