Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

31. janúar 2023

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Sæbraut í Reykjavík

Brot 38 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í vesturátt, að Höfðatúni. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 612 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 6%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 73 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 85.

Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað, blautt og snjór var á meðan hraðamælingunni stóð.