Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

2. júní 2022

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Sæbraut í Reykjavík

Brot 60 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík frá miðvikudeginum 1. júní til fimmtudagsins 2. júní. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í vesturátt, á gatnamótum við Langholtsveg. Á rúmlega einum sólarhring fóru 6.568 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 124. Einu ökutæki var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.