Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

28. október 2021

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Sæbraut í Reykjavík

Brot 192 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík frá mánudeginum 25. október til fimmtudagsins 28. október. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í vesturátt, á gatnamótum við Langholtsveg. Á þremur sólarhringum fóru 21.676 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 113. Fjórum ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.