Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

6. maí 2021

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Sæbraut í Reykjavík

Brot 185 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík frá mánudeginum 3. maí til miðvikudagsins 5. maí. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í vesturátt, á gatnamótum við Langholtsveg. Á tveimur sólarhringum fóru 18.676 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 122. Einu ökutæki var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.