Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

31. ágúst 2020

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Sæbraut í Reykjavík

Brot 93 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík frá fimmtudeginum 27. ágúst til mánudagsins 31. ágúst. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í austurátt, á gatnamótum við Langholtsveg. Á fjórum sólarhringum fóru 23.421 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 83 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 130. Níu ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.