Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

1. júlí 2020

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Sæbraut í Reykjavík

Brot 246 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík frá mánudeginum 29. júní til miðvikudagsins 1. júlí. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í vesturátt, á gatnamótum við Langholtsveg. Á tveimur sólarhringum fóru 15.237 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 78 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 103.

Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.