Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

19. nóvember 2014

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Sæbraut í Reykjavík

Brot 357 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík frá þriðjudegi til miðvikudags í síðustu viku. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í austurátt, á gatnamótum við Langholtsveg. Á rúmlega átján klukkustundum fóru 7.693 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 5%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 74 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Fjörutíu og sjö óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 92. Á umræddu tímabili var engu ökutæki ekið gegn rauðu ljósi, en vöktunin sneri einnig að því.

Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.