Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

27. júní 2014

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Sæbraut í Reykjavík

Brot 106 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík í fyrradag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í austurátt, að Kringlumýrarbraut. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 733 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 14%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 75 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.