Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

23. júní 2022

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Rjúpnavegi í Kópavogi

Brot 47 ökumanna voru mynduð á Rjúpnavegi í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Rjúpnaveg í norðurátt, að Arnarnesvegi. Á einni klukkustund, um hádegisbil, fór 301 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 16%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 88.

Vöktun lögreglunnar á Rjúpnavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.