Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

6. maí 2016

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Reynisvatnsvegi í Reykjavík

Brot 77 ökumanna voru mynduð á Reynisvatnsvegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reynisvatnsveg í austurátt, að Jónsgeisla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 293 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmlega fjórðungur ökumanna, eða 26%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 77.

Vöktun lögreglunnar á Reynisvatnsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.