Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

17. janúar 2024

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Reykjavíkurvegi í Hafnarfirði

Brot 80 ökumanna voru mynduð á Reykjavíkurvegi í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjavíkurveg í norðurátt, á móts við Reykjavíkurveg 76. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 336 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega fjórðungur ökumanna, eða 24%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 66 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 83.

Vöktun lögreglunnar á Reykjavíkurvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.