Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

5. apríl 2023

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Reykjavíkurvegi í Hafnarfirði

Brot 111 ökumanna voru mynduð á Reykjavíkurvegi í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjavíkurveg í norðurátt, að Dalshrauni. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fór 351 ökutæki þessa akstursleið og því ók um þriðjungur ökumanna, eða 32%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 66 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 85.

Vöktun lögreglunnar á Reykjavíkurvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.