Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

21. janúar 2020

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Reykjavíkurvegi í Hafnarfirði

Brot 89 ökumanna voru mynduð á Reykjavíkurvegi í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjavíkurveg í suðurátt, við Stakkahraun. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 354 ökutæki þessa akstursleið og því ók fjórðungur ökumanna, eða 25%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 66 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Tuttugu og einn ók á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 91.

Vöktun lögreglunnar á Reykjavíkurvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigningaskúrir og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.