Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

20. júní 2023

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Reykjavegi í Mosfellsbæ

Brot 6 ökumanna voru mynduð á Reykjavegi í Mosfellsbæ í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjaveg í austurátt, við Völuteig. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 118 ökutæki þessa akstursleið og því óku fáeinir ökumenn, eða 6%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 77.

Vöktun lögreglunnar á Reykjavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.