Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

20. ágúst 2014

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Reykjavegi í Mosfellsbæ

Brot 45 ökumanna voru mynduð á Reykjavegi í Mosfellsbæ í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjaveg í vesturátt, að Krikatorgi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 157 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 29%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 65 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Reykjavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.