25. júlí 2013
25. júlí 2013
Þessi frétt er meira en árs gömul
Hraðakstur á Reykjavegi í Mosfellsbæ
Brot 33 ökumanna voru mynduð á Reykjavegi í Mosfellsbæ í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjaveg í austurátt, við Ísfugl. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 99 ökutæki þessa akstursleið og því ók þriðjungur ökumanna, eða 33%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 65 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sjö óku á 70 km hraða eða meira, en sá sem hraðast ók mældist á 76.
Vöktun lögreglunnar á Reykjavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.