19. desember 2019
19. desember 2019
Þessi frétt er meira en árs gömul
Hraðakstur á Reykjanesbraut í Kópavogi
Brot 124 ökumanna voru mynduð á Reykjanesbraut í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í norðurátt, á móts við Smáralind. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 1.476 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 8%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 93 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Fimm óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 109.
Vöktun lögreglunnar á Reykjanesbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að bjart og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.