Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

30. nóvember 2021

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Reykjanesbraut í Kópavogi

Brot 91 ökumanns var myndað á Reykjanesbraut í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í suðurátt, á móts við Smáralind. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 1.468 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 6%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 92 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 104.

Vöktun lögreglunnar á Reykjanesbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.