Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

22. júní 2021

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Reykjanesbraut í Kópavogi

Brot 108 ökumanna voru mynduð á Reykjanesbraut í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í suðurátt, á móts við Smáralind. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 1.105 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 10%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 94 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Þrettán óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 108.

Vöktun lögreglunnar á Reykjanesbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigning var á meðan hraðamælingunni stóð.