28. nóvember 2017
28. nóvember 2017
Þessi frétt er meira en árs gömul
Hraðakstur á Reykjanesbraut í Hafnarfirði
Brot 44 ökumanna voru mynduð á Reykjanesbraut í Hafnarfirði á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í norðurátt, á móts við Brunnhóla. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fór 421 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 10%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 106 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði. Átta óku á 110 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 122.
Vöktun lögreglunnar á Reykjanesbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á með hraðamælingunni stóð.