20. október 2017
20. október 2017
Þessi frétt er meira en árs gömul
Hraðakstur á Reykjanesbraut í Hafnarfirði
Brot 57 ökumanna voru mynduð á Reykjanesbraut í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í norðurátt, á móts við Brunnhóla. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 418 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 14%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 107 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði. Sautján óku á 110 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 142.
Vöktun lögreglunnar á Reykjanesbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigning var á með hraðamælingunni stóð.