3. ágúst 2017
3. ágúst 2017
Þessi frétt er meira en árs gömul
Hraðakstur á Reykjanesbraut í Hafnarfirði
Brot 59 ökumanna voru mynduð á Reykjanesbraut í Hafnarfirði á þriðjudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í norðurátt, á móts við Brunnhóla. Á einni klukkustund, um hádegisbil, fóru 533 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 11%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 105 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði. Tólf óku á 110 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 125.
Vöktun lögreglunnar á Reykjanesbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.