Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

27. október 2014

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Reykjanesbraut í Hafnarfirði

Brot 30 ökumanna voru mynduð á Reykjanesbraut í Hafnarfirði á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í Hvassahrauni í vesturátt. Á einni klukkustund, um hádegisbil, fóru 273 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 11%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 103 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 117.