Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

13. júní 2014

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Reykjanesbraut í Hafnarfirði

Brot 55 ökumanna voru mynduð á Reykjanesbraut í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í austurátt, í Hvassahrauni. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 410 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 104 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði. Sex óku á 110 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 120.

Vöktun lögreglunnar á Reykjanesbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.